Óháð ráðgjöf
í mála- og skjalastjórnun.

Fyrir dómstóla og opinberar stofnanir — frá fyrstu skrefum til öruggrar innleiðingar. Greining og hönnun ferla, þarfagreining, gerð útboðsgagna og verkefnastjórnun á forsendum verkkaupa.

Bóka kaffifundTaktu stöðumatið →
International (EN): Independent advisory for courts, justice bodies and the wider sovereign and defence public sector 
M
Málaskrá
Leit
Mál
Skjöl
Mælaborð
Stillingar
Flokkar
Skipulagsmál
Fjármál
Mannauður
Öll mál
SíaNýtt mál
NúmerTitillStaðaDeildDags.Forgangur
M-2026-0142Umsókn um byggingarleyfiÍ vinnsluSkipulagssvið27. marVenjulegt
M-2026-0141Kvörtun vegna umferðarmálaLokiðUmhverfissvið25. marVenjulegt
M-2026-0140Beiðni um aðgang að gögnumBíðurSkrifstofa24. marHátt
M-2026-0139Endurskoðun á reglugerðÍ vinnsluLögfræðisvið22. marHátt
M-2026-0138Tilnefning í nefndBíður samþykktarSkrifstofa20. marVenjulegt
Bjarni Sv. Guðmundsson
Bjarni Sv. Guðmundsson

Stofnandi Móholts og helsti ráðgjafi. Sérfræðingur í málastjórnun, verkefnastjórn, upplýsingaöryggi og stafrænni umbreytingu. Ráðgjöfin er óháð einstökum kerfum og birgjum.

Sérsvið

Málastjórnun

Þarfagreining, kröfulýsing og ráðgjöf við val og innleiðingu málastjórnunarkerfa fyrir dómstóla, ráðuneyti og sveitarfélög.

Ferlagreining og breytingastjórnun

Kortlagning ferla, flöskuhálsagreining og innleiðing umbóta — handvirkt amstur víkur fyrir góðu stafrænu flæði.

Verkefnastjórnun

Ég stýri ekki úr fjarlægð heldur af ákefð. Verkefnastjórnun sem tengir stefnu og markmið við handverk teymisins og skýrar afurðir.

Upplýsingaöryggi og reglufylgni

ISO 27001 innleiðing, áhættumat, úttektir, rannsókn atvika og skipulagning úrbótaverkefna.

Stöðumat mála- og skjalastjórnunar

Hversu þroskuð er málaskráin þín?

Svaraðu 24 spurningum í sex flokkum og fáðu stöðumynd af málastjórnun, öryggi, stafrænu fullveldi og viðnámsþoli.

Taktu stöðumatið →

Afmörkuð verkefni

Stöðugreining

Skýr mynd af stöðunni — áður en þú tekur næstu ákvörðun

2 vikur

Ferla- og kerfishönnun

Frá ruglingi í skýrt verkflæði — hannað með þínu fólki

3–4 vikur

Upplýsingaöryggi & reglufylgni

Áhættumat, öryggisstefna og stuðningur við ISO 27001 ferðalagið

3–5 vikur
Rammasamningur ríkisins
Rammasamningur ríkisins
Viðurkenndur ráðgjafi á rammasamningi um rekstrarráðgjöf (útboð 21711). Þjónustan nær til allra opinberra stofnana og sveitarfélaga.
Stafrænt Ísland
Stafrænt Ísland
Aðili að rammasamningi ráðgjafa sem styðja opinberar stofnanir við stafræna umbreytingu og þjónustuþróun.
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg
Móholt ehf. er þáttakandi í DPS 14704 — samningi um þjónustu sérfræðinga. Við veitum borginni ráðgjöf um verkferla, gæðastjórnun og stafræna þróun.

Ertu ekki viss hvar á að byrja?

Bókaðu fund og við förum yfir stöðuna hjá þér — án skuldbindinga.

Bóka kaffifund