Óháð ráðgjöf
í mála- og skjalastjórnun.
Fyrir dómstóla og opinberar stofnanir — frá fyrstu skrefum til öruggrar innleiðingar. Greining og hönnun ferla, þarfagreining, gerð útboðsgagna og verkefnastjórnun á forsendum verkkaupa.

Stofnandi Móholts og helsti ráðgjafi. Sérfræðingur í málastjórnun, verkefnastjórn, upplýsingaöryggi og stafrænni umbreytingu. Ráðgjöfin er óháð einstökum kerfum og birgjum.
Sérsvið
Málastjórnun
Þarfagreining, kröfulýsing og ráðgjöf við val og innleiðingu málastjórnunarkerfa fyrir dómstóla, ráðuneyti og sveitarfélög.
Ferlagreining og breytingastjórnun
Kortlagning ferla, flöskuhálsagreining og innleiðing umbóta — handvirkt amstur víkur fyrir góðu stafrænu flæði.
Verkefnastjórnun
Ég stýri ekki úr fjarlægð heldur af ákefð. Verkefnastjórnun sem tengir stefnu og markmið við handverk teymisins og skýrar afurðir.
Upplýsingaöryggi og reglufylgni
ISO 27001 innleiðing, áhættumat, úttektir, rannsókn atvika og skipulagning úrbótaverkefna.
Hversu þroskuð er málaskráin þín?
Svaraðu 24 spurningum í sex flokkum og fáðu stöðumynd af málastjórnun, öryggi, stafrænu fullveldi og viðnámsþoli.
Afmörkuð verkefni
Upplýsingaöryggi & reglufylgni
Áhættumat, öryggisstefna og stuðningur við ISO 27001 ferðalagið
Ertu ekki viss hvar á að byrja?
Bókaðu fund og við förum yfir stöðuna hjá þér — án skuldbindinga.


