Það þarf reynslumikinn ráðgjafa til að lífga við kalda málaskrá.
Fagleg þjónusta fyrir réttarvörslustofnanir, opinberar stofnanir og sveitarfélög. Ég hef í yfir 25 ár hannað, skipulagt, innleitt og endurbætt málastjórnunarkerfi og stafræna ferla.

Stofnandi Móholts og helsti ráðgjafi. Sérfræðingur í verkefnastjórn, málastjórnun, öryggi og stafrænni umbreytingu — alltaf með puttan á púlsinum, starfar með þróunarteymum og verkkaupa.
Sérsvið
Málastjórnun
Greining, uppstilling og innleiðing málastjórnunarkerfa fyrir dómstóla, ráðuneyti og sveitarfélög.
Ferlagreining og breytingastjórnun
Kortlagning ferla, flöskuhálsagreining og innleiðing umbóta — handvirkt amstur víkur fyrir góðu stafrænu flæði.
Verkefnastjórnun
Ég stýri ekki úr fjarlægð heldur af ákefð. Verkefnastjórnun sem tengir stefnu og markmið við handverk teymisins og skýrar afurðir.
Upplýsingaöryggi og reglufylgni
ISO 27001 innleiðing, áhættumat, úttektir, rannsókn atvika og skipulagning úrbótaverkefna.
Hversu þroskuð er málaskráin þín?
Svaraðu 20 spurningum og fáðu skýra mynd af þroska, veikleikum og tillögu að forgangsröðun.
Þjónustupakkar
Stöðugreining
Skýr mynd af stöðunni — áður en þú tekur næstu ákvörðun
Ferla- og kerfishönnun
Frá ruglingi í skýrt verkflæði — hannað með þínu fólki
Upplýsingaöryggi & reglufylgni
Áhættumat, öryggisstefna og stuðningur við ISO 27001 ferðalagið
Ertu ekki viss hvar á að byrja?
Bókaðu fund og við förum yfir stöðuna hjá þér — án skuldbindinga.


